1

MANNABREYTINGAR HJÁ HILDIBRAND

Ýmislegt hefur gerst hjá Hildibrand undanfarnið. Menn hafa komið og aðrir farið.
Í síðustu viku gekk til liðs við okkur Łukasz nokkur Wiesiołek (237820484), tæplega 25 ára vængmaður og húsgagnasmíðameistari frá Póllandi.
Honum er ætlað að leysa af Rooney (242262249) sem hefur beðið um að fá að fara og höfum við orðið við ósk hans.

Eftir að blaðamenn höfðu gefið Rooney fimm heilar stjörnur fyrir leik sinn gegn toppliði deildarinnar, FC Fjordsgade (151334), tók hann þessa ákvörðun og vill komast að hjá stærra liði en Hildibrandur er.
Rooney er góður drengur og fyrirmyndar leikmaður og þökkum við honum fyrir alla þá tilburði og öll þau glæsimörk sem hann hefur sett og þá iðulega úr aukaspyrnum.

Dan Tollerud (98928244) kom til Hildibrands fyrir tímabilið. Hann er 34 ára danskur miðjumaður með alveg hreint framúrskarandi reynslu. Hann er lærður vélsmiður, er fjögurra barna faðir og eiginmaður. Konan hans heitir Dana.

(6) (2)